Íþróttir
|
HM í handbolta
| mbl
| 28.1.2011
| 22:12
Guðmundur: Áttum meira skilið
Guðmundur Þórður Guðmundsson landsliðsþjálfari í handknattleik sagði við mbl.is eftir ósigurinn gegn Króötum í kvöld, 33:34, að slæmur kafli í seinni hálfleik hefði gert útslagið.
„Mér fannst við eiga meira skilið en þetta. Karakterinn í liðinu var stórkostlegur í lokin og það munaði hársbreidd að við næðum að jafna leikinn en því miður tókst það ekki. En við fengum á okkur 20 mörk í seinni hálfleik sem er alltof mikið," sagði Guðmundur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






