Karabatic: Hansen verður sá besti

Mikkel Hansen verður sá besti að mati Karabatic sem margir telja þann besta. stækka

Mikkel Hansen verður sá besti að mati Karabatic sem margir telja þann besta. Reuters

Frakkinn Nikola Karabatic segir í fjölmiðlum að rétthenta stórskyttan í liði Danmerkur hinn 23 ára gamli Mikkel Hansen verði sá besti innan nokkurra ára. Hann segir að Hansen sé meðal þeirra bestu í dag en verði enn betri þegar fram líða stundir. Liðin gætu mæst í úrslitaleiknum um heimsmeistaratitilinn í handbolta en Frakkar mæta Svíum klukkan 17 í dag í fyrri undanúrslitaleiknum. Danir mæta Spáni klukkan 19:30 í seinni undanúrslitaleiknum.

Þessi ummæli Karabatic kættu Hansen að vonum en Karabatic er af mörkum talinn sá allra besti í dag. Hann er ekki bara frábær markaskorari heldur einnig frábær í því að finna réttu færin fyrir meðspilara sína og svo er hann góður varnamaður.

Hansen var í skýjunum þegar danskir fjölmiðlar bári þessi orð undir hann. „Já ég er mjög stoltur, sérsaklega vegna þess að þetta kemur frá Karabatic. Í mínum augum er Karabatic besti leikmaður í heimi. Það er ótrúlegt að sjá hann spila. Hann spilar vel fyrir meðspilarana en er alltaf ógnandi sjálfur.“

Hansen hefur verið frábær í liði Danmerkur á þessu móti en hann hefur skorað 49 mörk og gefið 28 stoðsendingar. „Þetta staðfestir að ég er að gera eitthvað gott á hverjum degi og það er að bera ávöxt. Kannski get ég náð þeim markmiðum að verða sá besti.“ omt@mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is