Markverðir Spánar mesta ógnin
Mikið kemur til með að mæða á þjálfari Dana Ulrik Wilbek og Lars Christiansen sem er þeirra reynslu mesti leikmaður. Reuters
Ulrik Wilbek þjálfari Dana í handknattleik vill að sínir leikmenn skjóti ekki Arpad Sterbik markvörð Spánar í gang en liðin eigast við í undanúrslitum heimsmeistaramótsins í dag klukkan 19:30. Wilbek segir helstu ógn Spánverja vera serbneska markvörðinn Sterbik sem fékk spænskt ríkisfang árið 2008.
Wilbek bendir einnig á að varamarkvörður þeirra, José Hombrados sé einn sterkasti varamarkvörðurinn á mótinu. Hann segir þó að tölfræði dönsku markvarðanna sé ekki síðri og því megi þeir alls ekki líta á þá félaga í markinu sem óyfirstíganlega hindrun.
Spánverjar hafa gríðarlega sterkan línumann og það er einmitt það sem Wilbek hefur líka áhyggjur af. Hann segir óskandi að danska vörnin nái að koma í veg fyrir línuspil þeirra og fái frekar skot utan af velli. Því Wilbek bendir á að Niklas Landin markvörður Dana hafi gengið vel með slík skot á mótinu.
Spurður út í möguleika Dana í leiknum gegn Spánverjum segir Wilbek; „Það er 49-51 prósent, Spánverjum í vil.“
Með öðrum orðum þá býst Wilbek þjálfari Dana við æsispennandi og jöfnum leik. omt@mbl.is






