Mikilvægari en margan grunaði
Ísland leikur í kvöld um 5. sæti í heimsmeistarakeppninni í handknattleik í Malmö-Arena. Mótherjarnir eru ekki af verri endanum en það eru Króatar sem hafa teflt fram einu allra besta liði heims á undanförnum árum.
Leikurinn er mikilvægari en margan grunar því úrslitin geta haft talsverð áhrif á gang mála hjá íslenska liðinu í forkeppni Ólympíuleikanna í London á næsta ári.
Með því að ná einu af sjö efstu sætunum á HM tryggði Ísland sér sæti á meðal þeirra tólf þjóða sem keppa um sæti á Ólympíuleikunum í sérstakri forkeppni.
Liðið sem hafnar í 5. sæti á HM mun leika í riðli með liðinu sem hafnar í 4. sæti á HM auk einnar Asíuþjóðar og einnar Ameríkuþjóðar. Álfumeistarar úr fjórum heimsálfum komast beint inn á leikana og því er um að ræða þjóðir sem enda í öðru sæti í álfukeppnum síðar á þessu ári.
Sjá ítarlegri grein og meiri umfjöllun um heimsmeistarakeppnina í Svíþjóð í íþróttablaði Morgunblaðsins.






