Skiptir verulegu máli

Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, á von á erfiðum leik gegn Króatíu um 5. sætið á HM í Svíþjóð. Leikurinn fer fram í Malmö-Arena í kvöld.

Guðmundur sagði úrslit leiksins skipta máli varðandi forkeppni Ólympíuleikanna sem fram fer á næsta ári. Með sigri lendir Ísland í riðli með einni Evrópuþjóð í stað tveggja.

Guðmundur sagði Króata hafa spilað afar vel á köflum í mótinu en ekki náð þeim stöðugleika sem þeir hafi oft sýnt.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is