Tveir leikmenn tæpir

Snorri Steinn skorar gegn Frökkum. stækka

Snorri Steinn skorar gegn Frökkum. mbl.is/Golli

Ekki er ljóst hvort Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, getur stillt upp sínu sterkasta liði í kvöld þegar Ísland mætir Króatíu í leiknum um 5. sæti á HM í Svíþjóð.

Leikurinn fer fram í Malmö-Arena en þar mun úrslitaleikur keppninnar fara fram á sunnudag. Höllin var tekin í notkun árið 2008 og tekur ríflega 13 þúsund áhorfendur og er því um að ræða stærsta mannvirki sem íslenska liðið hefur leikið í til þessa í keppninni.

Enn ríkir óvissa um þátttöku Ingimundar Ingimundarsonar vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í leiknum á móti Spánverjum. Þótt meiðslin séu ekki ýkja alvarleg hefur hann engu að síður ekki spilað síðan óhappið varð. Í dag skýrist hvort Ingimundur getur verið með. Snorri Steinn Guðjónsson glímir einnig við meiðsli og því er einnig óvissa um hvort hann verður með.

Nánar er fjallað um íslenska liðið og lokaleik þess gegn Króatíu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is