Ungverjar hrepptu sjöunda sætið
Ungverjar tryggðu sér í kvöld sæti í forkeppni Ólympíuleikanna þegar þeir lögðu Pólverja, 31:28, í úrslitaleiknum um 7. sætið á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð.
Það liggur því fyrir að Evrópuþjóðirnar sex sem verða í forkeppninni eru Svíþjóð, Ísland, Króatía, Ungverjaland, ásamt þeim tveimur sem eftir eru í keppninni og vinna ekki heimsmeistaratitilinn, Frakkland, Danmörk eða Spánn.
Möguleikar Pólverja um að komast í forkeppnina eru þó ekki úr sögunni þó þeir hafi endað í 8. sætinu. Evrópumeistararnir 2012 fara beint á Ólympíuleikana og verði það eitt af sjö efstu liðunum úr þessari heimsmeistarakeppni, fá Pólverjar sæti þess í forkeppninni. Síðan bætast tvö Evrópulið við, þau sem ná lengst í EM 2012 í Serbíu og hafa ekki þegar tryggt sér sæti í forkeppninni.






