Carlén vill sína fyrstu medalíu
Oscar Carlén vill fyrir alla muni vinna til verðlauna en liðið hefur ekki gert það síðan 2002. Reuters
Oscar Carlén leikmaður gestgjafanna á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Svíþjóð vill að leikmenn liðsins geri allt til að vinna bronz verðlaunin þegar þeir mæta Spánverjum. Sænska liðið tapaði fyrir því franska í undanúrslitum í gær. Liðin eigast við á morgun en Oscar Carlén hefur verið að glíma við smávægileg meiðsli í hné. Hann segist þó ætla að spila á morgun.
„Að vinna bronz verðlaun er mjög mikilvægt,“ sagði Carlén við sænska blaðamenn. „Það yrði fyrsta medalían fyrir marga af okkur. Ég tel að Frakkar séu með betra lið en Spánverjar. Við höfum mikinn vilja og hann á eftir að fleyta okkur langt, vegna þess að við viljum virkilega vinna þennan leik.“
Svíar unnu síðast til verðlauna þegar þeir urðu heimsmeistarar árið 2002, þá einmitt á heimavelli. Leikurinn á morgun er klukkan 13:30 í Malmö Arena í Malmö.






