Markvörður Dana vekur athygli

Niklas Jacobsen Landin vekur athygli stóru liðanna. Hann er búinn að eiga frábært mót í ... stækka

Niklas Jacobsen Landin vekur athygli stóru liðanna. Hann er búinn að eiga frábært mót í Svíþjóð. Reuters

Niklas Jacobsen Landin markvörður Dana á heimsmeistaramótinu í handknattleik hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu. Hann varði til að mynda mjög vel gegn Spánverjum í undanúrslitaleiknum í gær.

Landin er aðeins 22 ára gamall og því mikið efni. Sögur þess efnis að stór lið séu nú farin að sýna drengnum unga áhuga fljúga nú um Svíþjóð. Forráðamenn fjölmargra liða eru að sjálfsögðu á mótinu, einmitt til að tryggja sér krafta ungra og efnilegra leikmanna. Landin þvertekur fyrir að svo sé í sínu tilfelli.

„Það hefur enginn gert mér tilboð. Og ef svo væri  þá myndi ég heldur ekki tala um það. En það er ekki,“ sagði Landin í samtali við Tv2 í Danmörku.

Landin er með samning til 2013 hjá Bjerringbro/Silkeborg sem þýðir að félög þyrfti að borga fyrir leikmanninn ef þau vildi tryggja sér þjónustu hans. Það gæti orðið kapphlaup um þennan magnaða danska markvörð. omt

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is