Spilar nefbrotinn til úrslita

Jesper Noddesbro spilar nefbrotinn á morgun. Skemmst er að minnast þess þegar Alexander Peterson kjálkabrotnaði ... stækka

Jesper Noddesbro spilar nefbrotinn á morgun. Skemmst er að minnast þess þegar Alexander Peterson kjálkabrotnaði í leik gegn Rússlandi. Hann kláraði leikinn. Reuters

Danski línumaðurinn Jesper Noddesbro nefbrotnaði í undanúrslitaleiknum á heimsmeistaramótinu gegn Spáni í gær sem Danmörk vann 28:24. Það kemur þó ekki í veg fyrir að Noddesbro spili í úrslitaleiknum gegn Frökkum á morgun.

Læknir liðsins staðfesti það við danska fjölmiðla. „Það er ljóst að það er lítið brot í nefinu. Það ætti hinsvegar ekki að koma í veg fyrir það að hann spili á morgun. Hann fer svo í skoðun í næstu viku þegar hann kemur heim og hittir háls nef og eyrnasérfræðing.“

Leikurinn milli Frakka og Dana um gullið hefst á morgun klukkan 16:00 í Malmö

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is