Alexander í úrvalsliðið á HM
Alexander Petersson hefur verið valinn í úrvalslið heimsmeistaramótsins í handknattleik en liðið var tilkynnt fyrir stundu. Nikola Karabatic var valinn besti leikmaður heimsmeistarakeppninnar en hann á hinsvegar ekki í sæti í úrvalsliði mótsins.
Úrvalslið heimsmeistaramótsins er skipað eftirtöldum leikmönnum:
Vinstra horn: Hårvard Tvedten, Noregi.
Vinstri skytta: Mikkel Hansen, Danmörku.
Línumaður: Bertrand Gille, Frakklandi.
Leikstjórnandi: Dalibor Doger, Svíþjóð.
Hægri skytta: Alexander Petersson, Íslandi.
Hægra horn: Vedran Zrnic, Króatíu.
Markvörður: Thierry Omeyer, Frakklandi.
Besti leikmaðurinn: Nikola Karabatic, Frakklandi.
Þetta er enn ein rósin í hnappagat Alexanders á undanförnum vikum. Hann var jafnbesti leikmaður íslenska liðsins á HM. Alexander var einnig markahæsti leikmaður íslenska liðsins í mótinu, skoraði 53 mörk í níu leikjum. Samtals hefur Alexander skorað 119 mörk fyrir íslenska landsliðið í 24 leikjum á þremur heimsmeistaramótum. Hann er um leið fjórði markahæsti Íslendingurinn á HM frá upphafi og vantar aðeins þrjú mörk upp á að skjótast upp fyrir Patrek Jóhannesson sem situr í þriðja sæti.






