Boldsen: „Danir vinna HM 2013“

Lars Christiansen fyrirliði Dana, sem skoraði 5 mörk í leiknum og klúðraði ekki skoti, fer ... stækka

Lars Christiansen fyrirliði Dana, sem skoraði 5 mörk í leiknum og klúðraði ekki skoti, fer fyrir sínum mönnum við verðlaunaafhendinguna. Reuters

Danir gerðu heiðarlega tilraun til að fella franska liðið af stalli sem besta lið heims í handknattleik en það tókst ekki. Þeir töpuðu úrslitaleiknum sárgrætilega 37:35 eftir framlengdan leik. Þrátt fyrir það báru Danir sig vel og sögðust flestir una sáttir við árangurinn þrátt fyrir sárt tap. Hér fylgja nokkrar athugasemdir leikmanna eftir leikinn.

„Eftir tvö ár munu Danir taka næsta skref. Þegar við lítum á hæfileikana sem við höfum og þeir sem eru að berja á dyrnar í landsliðinu þá eru það mjög góðir menn. Þeir koma til með að gera liðið enn betra,“ sagði, ekki af baki dottinn, Joachim Boldsen.

„Við erum ekki langt frá Frökkum núna. Síðast þegar við mættum þeim þá var meiri munur á liðunum. Þetta er því mikilvæg viðurkenning fyrir okkur leikmennina, sagði Nicolay Jacobsen leikmaður Dana. 

Bo Spelleberg tryggði Dönum framlengingu með því að jafna metin í þann mund sem venjulegur leiktími kláraðis. „Við hefðum alveg eins getað unnið. Þetta er einn stolinn bolti, eða ein tæknileg mistök til eða frá og þá hefði þetta getað verið okkar. Þeir voru með forustuna megnið af leiknum en við vorum alltaf nálægt þeim,“ sagði Bo Spellerberg leikstjórnandinn magnaði. omt@mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is