Onesta: Danir náðu því besta út úr okkur

Claude Onesta, í svörtu skyrtunni, fagnar með sínum mönnum eftir úrslitaleikinn. stækka

Claude Onesta, í svörtu skyrtunni, fagnar með sínum mönnum eftir úrslitaleikinn. RADU SIGHETI

Það voru nokkur athyglisverð ummæli leikmanna eftir úrslitaleikinn á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem Frakkar unnu 37:35 eftir framlengdan leik. Frakkarnir voru auðmjúkir í sigurvímunni eftir leikinn og hældu danska liðinu fyrir góðan leik.

„Titillinn gefur mér mjög mikið. Danir náðu því besta út úr okkur. Þetta var frábær handboltaleikur,“ sagði Claude Onesta þjálfari Frakklands í leikslok sem er greinilega ekki orðinn leiður á því að vinna titla með franska liðinu.

Cedric Sorhaindo leikmaður Frakka tók undir með Onesta og sagði Dani hafa náð því besta út úr liðinu. „Þetta var góður og erfiður leikur fyrir okkur. Svo ég sé hreinskilinn þá vorum við líka heppnari en Danir.“

„Tvö frábær lið mættust í frábærum úrslitaleik. Danmörk hefði líka getað unnið leikinn, en sem betur fer þá voru það við. Gæði leiksins voru mjög mikil,“ sagði Arnaud Bingo leikmaður Frakka skömmu eftir leik. omt@mbl.is

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is