Spánverjar tryggðu sér 3. sætið

Cristian Garcia og félagar hans hjá Spánverjum fá bronzið um hálsin eftir úrslitaleikinn. stækka

Cristian Garcia og félagar hans hjá Spánverjum fá bronzið um hálsin eftir úrslitaleikinn. YVES HERMAN

Á ótrúlegum lokakafla voru Spánverjar sterkari og tryggðu sér bronz verðlaun þegar þeir sigruðu gestgjafa Svía í úrslitaleik, 23:24 á heimsmeistaramótinu í handknattleik. Staðan í hálfleik var 11:11 en markverðir liðanna voru án efa bestu menn leiksins.

Svíar minnkuðu muninn þegar 40 sekúndur voru eftir í 23:24. Spánverjar fóru í sókn og tóku í kjölfarið leikhlé þegar 25 sekúndur voru eftir. Þeir náðu að hanga á boltanum án þess að ógna marki Svía og svo fór sem fór. Það var í raun 7-8 mínútna kafli í seinnihálfleik sem gerði út af við Svía. Þá breyttu Spánverjar stöðunni úr 16:13 Svíum í vil í 16:19. Þeir voru svo alltaf skrefinu á undan og Sterbik í marki Spánverja varði mikilvæga bolta.

Maður leiksins var hinsvegar Johan Sjöstrand markvörður Svía. Hann hélt þeim inní leiknum á löngum köflum í leiknum en datt þó aðeins niður um miðbik síðari háfleiks þegar Spánverjar náðu að rífa sig frá Svíum.

Úrslitaleikurinn milli Danmerkur og Frakka hefst klukkan 16:00

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is