Aðeins 12% áhorf í Frakklandi

Nikola Karabatic í þann mund að kyssa íþróttamálaráðherra Frakklands eftir fund í Elysee höllinni í ... stækka

Nikola Karabatic í þann mund að kyssa íþróttamálaráðherra Frakklands eftir fund í Elysee höllinni í París, þar sem leikmenn voru heiðraðir. Reuters

Þrátt fyrir gríðarlega velgengni landsliðsins er áhugi Frakka ekki mikill á handknattleik, í það minnsta ef horft er til áhorfs. Samkvæmt tölum frá Frakklandi voru aðeins um 8,5 milljónir manna sem horfðu á úrslitaleikinn milli Frakka og Danmerkur á heimsmeistaramótinu í gær.

Ef litið er til þess að tæpar 65 milljónir manna búa í Frakklandi er áhorfið því aðeins um 12%. Ef við heimfærum þessar tölur á Ísland væri aðeins um 38 þúsund manns sem hefðu horft á leikinn. Þess vegna er skrifað „aðeins“ 8,5 milljónir horfðu á úrslitaleikinn.

Það er hinsvegar að frétta af frönsku landsliðsmönnunum að þeir eru búnir að fá hrós frá Nicolas Sarkosy forseta Frakklands. Hann hældi þeim fyrir frábært afrek. „Liðið hefur getu til að vinna með æðruleysi, sannfæringu og hæfileikum, gegn sterkum andstæðingum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is