Framlengt í fimmta skiptið

Frakkar fagna heimsmeistaratitlinum. stækka

Frakkar fagna heimsmeistaratitlinum. Reuters

Í fimmta sinn í sögu HM í handknattleik, sem rekja má aftur til 1938, varð að framlengja úrslitaleikinn til þess að knýja fram úrslit og krýna heimsmeistara.

Fyrst var gripið til framlengingar á HM 1961 í Vestur-Þýskalandi þar sem Rúmenar unnu Tékka, 9:8, eftir tvær framlengingar. Já, það var ekki hratt spilað í þá daga. Aftur varð að grípa til framlengingar níu árum síðar í þegar úrslitaleikurinn fór fram í París þar sem Rúmenar unnu Austur-Þjóðverja, 13:12, einnig í tvíframlengdum leik. Tólf árum síðar unnu Sovétmenn Júgóslava, 30:27, úrslitaleik í Vestur-Þýskalandi. Árið 2001 urðu Frakkar heimsmeistarar þegar þeir lögðu þáverandi heimsmeistara, Svía, 28:25, í úrslitaleik í Bercy-höllinni í París. Staðan var jöfn 22:22, eftir venjulegan leiktíma.

Í gær höfðu Danir nærri því fetað í fótspor Frakka fyrir 10 árum þegar þeim tókst að knýja fram framlengingu í úrslitaleik HM í Malmö í Svíþjóð gegn ríkjandi heimsmeisturum. iben@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is