Góður hagnaður á HM
Sænska handknattleikssambandið telur að spár sínar um að minnsta kosti 10 milljóna sænskra króna hagnað gangi eftir en þeir voru gestgjafar á heimsmeistaramótinu sem lauk í gær. Það er jafnvirði um 180 milljóna íslenskra króna.
Hagnaður verður lagður í þrjá þætti; uppbyggingu handknattleiks meðal barna, í unglingalandsliðin í samráði við landsliðsþjálfara A-landsliðsins og loks til almenns kynningarstarfs í íþróttinni sem hefur átt undir högg að sækja síðustu ár eftir að blómaskeið landsliðsins undir stjórn Bengts Johannssonar rann sitt skeið í byrjun aldarinnar.
Alls seldust rúmlega 210.000 aðgöngumiðar á leiki keppninnar af þeim 270 þúsund sem voru til sölu. Áætlanir Svía fyrir heimsmeistarakeppnina um 10 milljóna sænskra króna hagnað þóttu djarfar en virðast hafa gengið eftir.
iben@mbl.is






