Íþróttir
|
HM í handbolta
| mbl
| 31.1.2011
| 10:49
Gríðarlegt áhorf á úrslitaleikinn
Gríðarlegt áhorf var í Danmörku á úrslitaleik Dana og Frakka á heimsmeistaramótinu í handknattleik sem háður var í Malmö í gær. Talið er 87% landsmanna hafi fylgst með leiknum í sjónvarpi eða 2,3 milljónir manna.
Danir töpuðu í háspennuleik þar sem úrslitin réðust í framlengingu en bæði TV2 og danska ríkissjónvarpið voru með beina útsendingu frá leiknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






