„Aron gæti orðið einn sá besti í heimi“

Aron Pálmarsson. stækka

Aron Pálmarsson. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Daniel Costantini, fyrrverandi landsliðsþjálfari Frakklands, gerði Frakka að heimsmeisturum á HM á Íslandi árið 1995. Hann endurtók leikinn á heimavelli sex árum síðar. Costantini hefur fylgst vel með íslenskum handknattleik í gegnum árin og sá leiki Íslands í milliriðlinum.

Morgunblaðið spurði hann út í leik íslenska liðsins á HM og Costantini sagði varnarleikinn ekki hafa verið nægilega góðan hjá Íslendingum.

„Þið eigið stórkostlega leikmenn í sókninni eins og Alexander Petersson og Aron Pálmarsson. Ég er þeirrar skoðunar að Aron geti orðið einn besti leikmaður heims eftir aðeins eitt til tvö ár,“ sagði Costantini þegar Morgunblaðið spurði hann út í íslensku leikmennina.

Sjá nánar viðtöl við Daniel Costantini og Stefan Kretzschmar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is