Bent hissa á valinu á Alexander

Alexander Petersson skorar eitt sex marka sinna gegn Króötum. stækka

Alexander Petersson skorar eitt sex marka sinna gegn Króötum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Bent Nyegaard handboltasérfræðingur dönsku sjónvarpsstöðvarinnar TV2 segir að Alexander Petersson og Svíinn Dalibor Doder verðskuldi ekki að vera í úrvalsliði heimsmeistaramótsins sem valið var af sérstakri dómnefnd á vegum Alþjóða handknattleikssambandsins og var tilkynnt fyrir úrslitaleik Dana og Frakka á HM í fyrradag.

„Þetta val endurspeglaði ekki það sem var að gerast á mótinu. Ég ber mikla virðingu fyrir Alexander Petersson en hann á ekki heima í þessu liði. Ég hefði frekar vilja sjá Kasper Söndegaard í þessari stöðu. Þetta segi ég ekki af einhverri föðurlandsást heldur er það mín skoðun og ég tel að þeir sem völdu liðið hafi ekki skynjað það sem var að gerast á mótinu,“ segir Nyegaard á vef TV2 en hann hefur fylgst grannt með öllum stórmótum fyrir sjónvarpsstöðina og var á árum áður þjálfari og þjálfaði meðal annars karlalið Fram.

gummih@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is