„Íslendingar þurfa að spila af hörku“

Ólafur Stefánsson skorar gegn Þjóðverjum. stækka

Ólafur Stefánsson skorar gegn Þjóðverjum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Stefan Kretzschmar var um árabil lykilmaður í þýska landsliðinu og í liði Magdeburg. Þar lék hann við hlið Ólafs Stefánssonar, Sigfúsar Sigurðssonar og Arnórs Atlasonar og undir stjórn Alfreðs Gíslasonar.

Kretzschmar fylgdist grannt með gangi mála í milliriðli Íslands og Þýskalands í Jönköping enda var hann þar við störf fyrir þýska sjónvarpsstöð.

Morgunblaðið tók hornamanninn litríka tali og spurði hann fyrst hvers vegna Þýskalandi tókst að sigra Ísland en tapið í þeim leik var vendipunktur mótsins hjá Íslendingum. „Eins og Þjóðverjar höfðu spilað í riðlinum þá átti ég ekki von á því að þeir myndu vinna leikinn á móti Íslandi. Að mínu mati komust Íslendingar aldrei í gang í vörninni og Þjóðverjar þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að skora. Leikurinn var ekki harður og íslenska liðið þarf að spila af hörku í vörninni til þess að vinna leikina gegn sterkustu liðunum.

Nánar er rætt við Kretzschmar og Daniel Costantini, fyrrum landsliðsþjálfara Frakka, í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is