Lágmark eitt stig í kvöld (myndskeið)
Þegar tveimur umferðum er lokið hjá íslenska landsliðinu í handknattleik kvenna á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Brasilíu má nokkuð ljóst vera að það verður að minnsta kosti að fá þrjú stig úr leikjunum tveimur til þess að draumurinn um sæti í 16 liða úrslitum keppninnar rætist.
Fimm stig mun að öllum líkindum þurfa til þess að komast áfram en fjögur stigum munu sennilega ekki duga íslenska liðinu, bæði vegna þess að markatala liðsins er ekki góð, en til hennar verður litið verði nokkuð lið jöfn að stigum og skera þarf úr um hver hlýtur sæti í 16 liða úrslitum. Þá gæti tapið fyrir Angóla vegið þung ef Angóla verður ein þeirra þjóða sem enda riðlakeppnina með fjögur stig eins og Ísland.
Svartfellingar sem eru eina liðið sem Ísland hefur unnið hefur ekki misstigið sig í öðrum leikjum keppninnar. Því mun sigurinn á þeim ekki vega eins þungt og vonir stóðu í upphafi.
Þjóðverjar unnu afar torsóttan og nauman sigur, 23:22, á Kínverjum seint í gærkvöldi í leik þar sem kínverska liðið var með tveggja til fjögurra marka forskot allt þar til fjórar mínútur voru eftir. Þá fyrst jafnaði þýska liðið metin og skoraði sigurmarkið, 23:22, þegar rúm mínúta var eftir og tókst að halda fengnum hlut.
Engin þjóð í A-riðli er fullkomlega örugg ennþá um sæti í 16 liða úrslitum þótt staða Norðmanna og Svartfellinga líti út fyrir að vera best, ekki síst þegar litið er til þess að gegn hverjum þessi tvö lið eiga eftir að spila.
Leikur Íslands við Þýskaland í Santos, sem hefst klukkan 21.30 í kvöld er algjör úrslitaleikur fyrir íslenska liðið til að ná sæti í 16 liða úrslitum. Það verður að fá a.m.k. eitt stig úr honum og vinna Kína í lokaumferðinni á föstudag. Tap fyrir Þjóðverjum í kvöld dregur verulega úr vonunum.
Valdir kaflar úr leik Þýsklands og Kína, smellið HÉR






