Skortur á jafnrétti hjá IHF

Karen Knútsdóttir í leik með landsliðinu. stækka

Karen Knútsdóttir í leik með landsliðinu. hag / Haraldur Guðjónsson

Talsverðar óánægju gætir meðal forráðamanna nokkurra félagsliða, einkum á Norðurlöndunum, með að Alþjóða-handknattleikssambandið, IHF, tryggir ekki leikmenn sem taka þátt í heimsmeistaramóti kvenna sem nú stendur yfir í Brasilíu.

Segja talsmenn danskra liða, m.a. Viborg, að það komi til greina að þeir gefi ekki leikmönnum sínum leyfi til þess að taka þátt í heimsmeistaramótum í framtíðinni taki IHF ekki upp á því að tryggja leikmenn HM kvenna með sama hætti og IHF gerir á heimsmeistaramóti karla.

Frá og með síðasta heimsmeistaramóti karla, sem fram fór í Svíþjóð í byrjun þessa árs, hóf IHF að tryggja alla leikmenn sem tóku þátt auk þess að greiða félagsliðum leikmanna hluta launa þeirra meðan HM stóð yfir. IHF gaf sig hinsvegar ekki fyrr en öll stærstu félagslið Evrópu tóku höndum saman og hótuðu að láta leikmenn sína ekki lausa til þátttöku á HM ef þeir væri ekki að fullu tryggðir á vegum IHF

Tryggingarnar eru mikilvægar ef leikmenn meiðast alvarlega og verða lengi frá keppni eða verða hreinlega að hætta keppni. Þá taka tryggingarnar við en þær eru afar dýrar og samkvæmt heimildum Morgunblaðsins geta þær bestu kostað tugi þúsunda á mánuði. Því er um að ræða mikinn kostnað sem annaðhvort félögin eða leikmenn þeirra bera.

 Nánar er fjallað um málið í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is