Skoruðu ekki mark í 33 mínútur

Frá viðureign Ástralíu og Hollands á HM. stækka

Frá viðureign Ástralíu og Hollands á HM. http://www.ihf.info

Lið Ástralíu hefur ekki riðið feitum hesti frá HM kvenna í handknattleik en liðið hefur tapað öllum þremur leikjum sínum afar stórt. Ástralar töpuðu fyrsta leiknum gegn Kasakstan 37:9, fyrir Hollendingum 53:15 og á móti Rússum í gær 45:8.

Ástralía hefur aðeins skorað 32 mörk en fengið á sig 135.

Í leiknum á móti heimsmeisturum Rússa í gær skoruðu Ástralar ekki eitt einasta mark í 33 mínútur eða frá 17. til 50. mínútu. Þeim tókst hins vegar að skora fjögur mörk á síðustu 10 mínútum leiksins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is