Stella með flest mörkin

Stella brýst í gegnum vörn Angóla. stækka

Stella brýst í gegnum vörn Angóla. mbl.is/Egill Örn

Stella Sigurðardóttir er markahæsti leikmaður íslenska kvennalandsliðsins á HM í Brasilíu. Stella hefur skorað 15 mörk í þremur leikjum Íslands á mótinu. Suleiky Gomez Hernandez frá Kúbu er markahæst á mótinu með 21 mark.

Lois Abbingh (Hollandi), Shio Fujii (Japan), Franziska Mietzner (Þýskalandi) og Andrea Penezic (Króatíu) koma næstar á markalistanum en þær hafa allar skorað 20 mörk.

Fjórða umferð riðlakeppni HM er á dagskrá í dag og klukkan 21.30 mætast Ísland og Þýskaland. Í þeim leik verður íslenska liðið að fá stig en tapi það eru möguleikar þess á að komast áfram í 16-liða úrslitin harla litlir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is