Íþróttir
|
HM í handbolta
| mbl
| 8.12.2011
| 9:53
| Uppfært
11:57
HM: Karen á meðal þeirra markahæstu
Karen Knútsdóttir er á meðal markahæstu leikmanna á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik. Karen skoraði 9 mörk í sigrinum glæsilega á Þjóðverjum í gær og hún hefur þar með skorað 21 mark á mótinu.
Karen, sem hefur sýnt fádæma öryggi af vítalínunni á HM, er í 5.-9. sæti á markalistanum. Marcelina Kiala frá Angóla og Linn Jourm Sulland frá Noregi eru markahæstar með 25 mörk, Franziska Mietzner frá Þýskalandi hefur skorað 24, Lois Abbingh frá Hollandi 23 og Karen ásamt þremur öðrum leikmönnum hefur skorað 21 mark.
Stella Sigurðardóttir er næstmarkahæst í íslenska liðinu með 18 mörk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






