Þórir: Aldrei að vanmeta Ísland

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Karen Knútsdóttir glaðar í bragði eftir sigurinn á Þjóðverjum í gær. stækka

Anna Úrsúla Guðmundsdóttir og Karen Knútsdóttir glaðar í bragði eftir sigurinn á Þjóðverjum í gær. http://www.ihf.info

„Aldrei að vanmeta Ísland,“ sagði Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik, þegar honum bárust tíðindin af úrslitunum í leik Íslands og Þýskalands á HM kvenna í handknattleik í gær.

Þórir þakkaði löndum sínum fyrir sigurinn en þau þýða að Norðmenn, sem lögðu Angóla í gær, 26:20, eiga nú möguleika á að vinna riðilinn með því að leggja Svartfellinga að velli í lokaumferð riðlakeppninnar á morgun.

Þórir segist ekki vera í vafa um að Ísland sé besta handboltaþjóð í heimi miðað við höfðatölu. 320.000 manna þjóðin gerði sér lítið fyrir og vann Þjóðverja í gærkvöldi en íbúar í Þýskalandi eru um 82 milljónir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is