Danir komu fram hefndum
Danir eru komnir í undanúrslit á heimsmeistaramóti kvenna í handknattleik eftir sigur á Angóla, 28:23, í átta liða úrslitunum í Brasilíu í dag. Danir náðu þar með að hefna ófaranna frá því á HM fyrir tveimur árum en þá töpuðu þeir fyrir Angóla í milliriðli.
Danir höfðu undirtökin allan tímann. Þeir voru fjórum mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 15:11. Eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik var staðan orðin 20:15 en Afríkumeistararnir neituðu að gefast upp. Þeir minnkuðu muninn í 20:19 en nær komust þeir ekki. Danir voru sterkari á lokakaflanum og fögnuðu öruggum sigri.
Danir mæta Frökkum í undanúrslitunum sem fyrr í dag gerðu sér lítið fyrir og lögðu heimsmeistara Rússa. Angóla og Rússland mætast í leikjunum um 5.-8. sætið.
Síðar í kvöld mætast Króatía og Noregur annarsvegar og Spánn og Brasilía hinsvegar i 8-liða úrslitum.






