HM: Spánn vann Brasilíu í spennuleik

Veronica Cuadrado er hér að skora fyrir Spánverja gegn Brasilíumönnum í kvöld. stækka

Veronica Cuadrado er hér að skora fyrir Spánverja gegn Brasilíumönnum í kvöld. Reuters

Spánn var rétt í þessu að tryggja sér sæti í undanúrslitunum á heimsmeistaramótinu í handknattleik kvenna eftir sigur á Brasilíu, 27:26, í æsispennandi leik sem fram fór í Sao Paulo í Brasilíu. Sigurmarkið kom úr hraðaupphlaupi 15 sekúndum fyrir leikslok og tveimur leikmönnum færri tókst þeim brasilísku ekki að jafna metin.

Spánverjar fengu óskabyrjun en þeir skoruðu fjögur fyrstu mörkin og komust í 6:1 en vel studdar af áhorfendum tókst brasilísku konunum að minnka muninn og í leikhléi var munurinn tvö mörk, 19:17. Í seinni hálfleik skiptust liðin á að hafa forystu en Spánverjar höfðu heppnina með sér og innbyrtu dramatískan sigur.

Spánverjar mæta Evrópu- og ólympíumeisturum Norðmanna í undanúrslitum en í hinni viðureigninni eigast við Danir og Frakkar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, HM í handbolta — Fleiri fréttir

Þriðjudaginn 10. apríl


finnur.is