Ekki er búist við öðru en Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, verði klár í slaginn með íslenska landsliðinu gegn Dönum annað kvöld. Hann var slappur í morgun en ekki alvarlega veikur.
Þá glímir Björgvin Páll við eymsli í öxl. Að sögn Einars Þorvarðarsonar, fararstjóra íslenska landsliðsins í Doha í Katar, er ekki ástæða til að hafa áhyggjur af ástandinu á Björgvini Páli. „Við reiknum með Björgvini í leikinn á morgun,“ sagði Einar og var hinn rólegasti yfir stöðunni.