Ætlum að taka þetta

„Það er gríðarleg pressa á Dönum eftir að hafa komist í úrslit á mörgum stórmótum á síðustu árum,“ segir Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, glaðbeittur að vanda spurður út í viðureign Íslendinga og Dana í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins  í kvöld.

„Við áttum góðan leik gegn Egyptum sem við ætlum að taka með okkur inn í viðureignina við Dani. Við ætlum að vinna leikinn,“ segir Kári Kristján sem fer á kostum í viðtalinu sem tekið var í gær. Sjón er sögu ríkari.

Viðureign Íslands og Danmerkur hefst klukkan 18 og verður í beinni textalýsingu á mbl.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert