Guðjón Valur þokast upp á markalistanum

Guðjón Valur Sigurðsson fagnar einu af 13 mörkum sínum gegn …
Guðjón Valur Sigurðsson fagnar einu af 13 mörkum sínum gegn Egyptum. mbl.is/Golli

Guðjón Valur Sigurðsson er í 14.-17. sæti yfir markahæstu leikmenn á heimsmeistaramótinu í handknattleik í Katar.

Guðjón Valur, sem skoraði 13 mörk í sigurleiknum gegn Egyptum á laugardaginn, hefur skorað alls 25 mörk í leikjunum fimm sem Íslendingar hafa spilað á mótinu en Ísland mætir Danmörku í 16-liða úrslitunum í kvöld.

Markahæstu leikmenn eru:

52 - Dragan Gajic, Slóveníu
49 - Zarko Markovic, Katar
45 - Kirl Lazarov, Makedóníu
42 - Robert Weber, Austurríki
34 - Federico Pizarro, Argentínu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert