„Ég held að það sé verri tilfinning fyrir Guðmund en okkur að hann verður andstæðingur okkar,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik karla, um viðureignina við Dani í 16-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í handknattleik í kvöld, spurður hvort það setji annan svip á viðureignina sú staðreynd að Guðmundur Þórður Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Íslands, situr nú hinum megin borðsins.
„Hann þekkir allar okkar veikleika og styrkleika en á móti kemur veit maður nokkuð hvað hann mun leggja áherslu á til að stöðva okkar leik,“ segir Guðjón Valur sem fór á kostum gegn Egyptum á laugardaginn og skoraði 13 mörk.
„Ég hef minni áhyggjur af Guðmundi, meiri af leikmönnunum sem eiga stöðva okkur inni á vellinum.
Danska liðið er vel skipað leikmönnum. Við berum virðingu fyrir því sem það hefur afrekað en það breytir ekki þeirri staðreynd að staðan verður 0:0 þegar flautað verður til leiks og viðureignin mun standa yfir í sextíu mínútur.
Styrkur danska landsliðsins hræðir okkur ekki. Við ætlum að vinna þennan leik eins og þann síðasta,“ segir Guðjón Valur Sigurðsson.
Nánar er rætt við Guðjón Val á meðfylgjandi myndskeiði.
Viðureign Íslendinga og Dana hefst klukkan 18 í dag og verður fylgst með henni í beinni textalýsingu á mbl.is.