„Spiluðum ekki okkar besta leik“

Gedeon Guardiola gegn Niklas Landin.
Gedeon Guardiola gegn Niklas Landin. EPA

Danir eru vitanlega í sárum eftir eins marks tapið gegn heimsmeisturum Spánverja á HM í Katar í kvöld.

„Þetta var virkilega fúlt því við höfðum alla möguleika á að vinna leikinn. Við spiluðum allt í lagi en náðum ekki að framkalla okkar besta leik. Við getum bara sjálfum okkur kennt hvernig fór, “ sagði Niklas Landin markvörður danska landsliðsins eftir leikinn.

Danir fara nú keppni um sæti 5-8 á heimsmeistaramótinu en Spánverjar etja kappi við Frakka í undanúrslitunum.

 Þetta var fyrsti tapleikur Dana á heimsmeistaramótinu en Spánverjar hafa unnið alla sjö leiki sína á mótinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert