Það styttist óðum í heimsmeistaramótið í handknattleik karla í Frakklandi þar sem Íslendingar verða á meðal þátttökuþjóða.
Mótið hefst þann 11. janúar en Ísland hefur keppni 12. janúar. Ísland spilar leiki sína í Metz en fjórar efstu þjóðirnar í hverjum riðli komast í 16-liða úrslit þar sem leikið verður eftir útsláttarfyrirkomulagi.
Leiktímar Íslands á HM:
12. janúar kl.19:45: Ísland – Spánn
14. janúar kl. 13:45: Ísland – Slóvenía
15. janúar kl. 13:45: Ísland – Túnis
17. janúar kl. 19:45: Ísland – Angóla
19. janúar kl. 16:45: Ísland – Makedónía