Guðjón Valur jafnar Ólaf í dag

Guðjón Valur fagnar marki gegn Slóvenum í gær.
Guðjón Valur fagnar marki gegn Slóvenum í gær. AFP

Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, jafnar í dag met Ólafs Stefánssonar yfir fjölda leikja í heimsmeistarakeppni í handknattleik.

Guðjón Valur leikur í dag sinn 54. leik á HM en Ólafur Stefánsson lék 54 leiki á heimsmeistaramóti.

Guðjón Valur er markahæsti leikmaður Íslands á HM frá upphafi en hann hefur skorað 278 mörk en þetta er áttunda heimsmeistaramótið sem hann tekur þátt í sem er meira en nokkur Íslendingur hefur gert. Ólafur Stefánsson lék á 7 heimsmeistaramótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert