Hvíta-Rússland og Brasilía með sigra

Jose Guilherme de Toledo er besti leikmaður Brassa.
Jose Guilherme de Toledo er besti leikmaður Brassa. AFP

Brasilía og Hvíta-Rússland unnu síðustu leiki kvöldsins á HM karla í handbolta. Brassar unnu verðandi lærisveina Dags Sigurðssonar í Japan, 27:24, og Hvít-Rússar höfðu betur gegn Sádi-Arabíu, 29:26. 

Leikur Sádi-Araba og Hvít-Rússa var jafnari en flestir bjuggust við og var staðan 26:25 Hvít-Rússum í vil skömmu fyrir leikslok. Austur-Evrópuþjóðin var sterkari undir lokin og tryggði sér stigin tvö, þeirra fyrstu á mótinu. Sádi-Arabar eru stigalausir á botni C-riðils. 

Brasilíumenn og Japanar léku jafnan og spennandi leik á sama tíma. Brassarnir voru með forskot allan leikinn, þó að það hafi verið naumt tókst þeim að halda því út leikinn. 

Brasilía er með fjögur stig eftir tvo leiki en Japanar eru án stiga. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert