„Þarf eitthvað mikið að gerast“

Aron Pálmarsson.
Aron Pálmarsson. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það þarf eitthvað mikið að gerast ef ég á að koma,“ sagði landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson við mbl.is þegar hann er spurður að því hvort sá möguleiki sé fyrir hendi að hann taki þátt í leiknum við Makedóníu í HM á fimmtudaginn.

Sem kunnugt er yfirgaf Aron landsliðshópinn fyrir fyrsta leikinn gegn Spánverjum og hélt hann heim til Íslands þegar ljóst var að hann var ekki leikfær vegna meiðsla sem hann hefur verið að glíma við undanfarna mánuði.

Íslendingar mæta Angóla á HM á morgun og lokaleikurinn í riðlinum verður gegn Makedóníu á fimmtudaginn. Sigrar í þessum leikjum myndu fleyta liðinu í 16-liða úrslitin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert