Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er þátttakandi í Facebook-leik þar sem hann getur unnið fimm þúsund króna gjafabréf í Fiskbúð Hólmgeirs.
Nútíminn sagði fyrst frá, en umrædd fiskbúð deildi frétt mbl.is um næstu mótherja Íslands á HM í handknattleik, Angóla, og spurði fylgjendur sína hvernig þeir haldi að leikurinn seinni partinn í dag endi. Sá sem giskar á rétt fær gjafabréf að launum.
„27-19 fyrir Ísland!" sagði forsetinn sigurviss, og hver veit nema hann fái að launum gjafabréf í fiskbúðina.