Fjórum sinnum í tréverkið í einu skoti (myndskeið)

Mikkel Hansen.
Mikkel Hansen. AFP

Mikkel Hansen, stórskytta danska landsliðsins, hafði ekki heppnina með sér í einu skotinu sem hann tók í leiknum gegn Bahrain á HM í handknattleik en leikurinn stendur nú yfir.

Í stöðunni 3:3 tók Hansen skot og það fór svo að boltinn hitti tréverkið fjórum sinnum í þessu sama skoti en inn fyrir marklínu fór boltinn.

Atvikið má sjá í þessu myndskeiði

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert