Janus og Ásgeir taka því rólega í dag

Ásgeir Örn Hallgrímsson
Ásgeir Örn Hallgrímsson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsmennirnir Janus Daði Smárason og Ásgeir Örn Hallgrímsson glíma við meiðsli og taka ekki þátt í æfingu íslenska landsliðsins í Metz í Frakklandi í kvöld.

Janus Daði fékk högg á hnéð í leiknum gegn Túnisum um síðustu helgi og sat allan tímann á bekknum í leiknum gegn Angólamönnum í gær. Ásgeir Örn átti við meiðsli að stríða í aðdraganda HM en hann hefur þó spilað alla leikina en hefur greinilega ekki getað beitt sér sem skildi.

Geir Sveinsson landsliðsþjálfari sagði við mbl.is þegar fréttamenn hittu landsliðshópinn á hóteli landsliðsins um hádegisbilið að ekki verði gerðar neinar breytingar á leikmannahópnum og hann vonast til þess að þeir Janus og Ásgeir verði klárir í leikinn gegn Makedóníu á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert