„Allt liðið brást á lokakafla leiksins, ekki aðeins leikmenn heldur einnig stjórnendur liðsins. Stjórnun liðsins og skiptingar voru ekki góðar,“ sagði Guðríður Guðjónsdóttir, fyrrverandi landsliðskona í handknattleik og handknattleiksþjálfari, eftir leik Íslands og Makedóníu á HM í Frakklandi í gær.
„Þegar leið á síðari hálfleikinn var byrjað að hræra allt of mikið í liðinu, ekki síst á hægri vængnum í sóknarleiknum þar sem Rúnar Kárason hafði átt góðan leik og þótt hann hafi ekki skorað eins mikið í síðari hálfleik stóð af honum ógn,“ sagði Guðríður. „Menn fóru illa að ráði sínu og þorðu ekki að taka skarið.
En þegar upp er staðið þá náðust markmiðin að komast í 16 liða úrslit þótt liðið hefði alla möguleika á að gera betur. Mótið í heild er góður lærdómur fyrir marga leikmenn og þjálfarateymið,“ sagði Guðríður.
Ítarlega er fjallað um leik Íslands og Makedóníu í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.