„Við munum snúa aftur“

Bjarki Már Elísson fagnar marki á HM.
Bjarki Már Elísson fagnar marki á HM. AFP

Bjarki Már Elísson kom með gott innlegg á blaðamannafundi eftir að Ísland féll úr leik á heimsmeistaramótinu í handknattleik í kvöld. Ísland tapaði fyrir ríkjandi meisturum og gestgjöfum Frakka, 31:25.

„Við erum frá Íslandi og trúum því alltaf að við getum unnið. Það skiptir engu á móti hverjum við erum að spila, við trúum því að við getum unnið hvaða andstæðing sem er,“ sagði Bjarki og einbeitingin skein úr andliti hans.

„Ég er ekki ánægður með tapið en ég held að við höfum lært mikið á þessu móti og við verðum að nota þessa reynslu til þess að þróast sem lið. Við verðum sterkari og við munum snúa aftur,“ sagði Bjarki Már, og ekki laust við að lokaorðin hafi minnt á þau sem Arnold Schwarzenegger gerði ódauðleg í Tortímandanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert