Ótrúleg endurkoma Slóvena

Marko Bezjak fagnar sigrinum í kvöld.
Marko Bezjak fagnar sigrinum í kvöld. AFP

Slóvenar tóku bronsið á HM í handbolta karla eftir ótrúlegan 31:30 sigur á Króötum í leiknum um 3. sætið í kvöld. 

Króatar voru átta mörkum yfir þegar 20 mínútur voru eftir, 24:16, en stórkostlegur lokakafli tryggði Slóvenum sigurinn. 

Króatar gátu tryggt sér framlengingu í blálokin en sókn þeirra rann út í sandinn og gátu Slóvenar því fagnað sínum fyrstu verðlaunum á HM. 

Slóvenar skoruðu sex af sjö síðustu mörkum leiksins og tryggðu sér magnaðan sigur. Gasper Marguc, Darko Cingesar og Marko Bezjak skoruðu fjögur mörk hver fyrir Slóvena á meðan Luka Cindric skoraði sjö fyrir Króata. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert