Aron ekki með í kvöld

Aron Pálmarsson er tognaður á kálfa.
Aron Pálmarsson er tognaður á kálfa. mbl.is/Kristinn Magnússon

Landsliðsfyrirliðinn Aron Pálmarsson verður ekki með Íslandi gegn Svíþjóð í milliriðli II á HM í handbolta í kvöld. Aron er tognaður á kálfa og er því ekki leikfær. 

Um mikið áfall fyrir íslenska liðið er að ræða, enda Aron lykilmaður hjá landsliðinu og mikið undir í kvöld. Ísland tekur stórt skref í áttina að átta liða úrslitum með sigri í kvöld en vonin um sæti í átta liða úrslitum verður afar veik með tapi. 

Flautað verður til leiks í Scandinavium-höllinni í Gautaborg klukkan 19:30. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert