UMFK Esja tekur á móti Skautafélagi Akureyrar í Laugardal í kvöld í fyrsta leik liðanna í úrslitum Hertz-deildar karla í íshokkí.
Um það bil einn og hálfur mánuður er síðan Esjumenn fögnuðu því að hafa tryggt sér deildarmeistaratitilinn, en Björn Róbert Sigurðarson segir að liðið hafi ekki slakað á og sé hungrað í Íslandsmeistaratitilinn.
„Við erum búnir að nota þessa síðustu leiki til að undirbúa okkur fyrir úrslitakeppnina. Við vissum snemma að við værum á leið í hana og það er fínt að fá svona góðan undirbúning. Við erum ekkert búnir að stíga af bensíngjöfinni þó að við höfum unnið deildina,“ sagði Björn, en Esja lék sex leiki eftir að hafa tryggt sér deildarmeistaratitilinn, meðal annars tvo sigurleiki gegn SA.
„SA-ingar eru náttúrulega mjög seigir og það má aldrei afskrifa þá. Við fórum í úrslit á móti þeim í fyrra og þeir tóku okkur bara 3:0 – gáfu okkur ekki mikinn séns. Staðan í leikjunum sagði annað. Þetta verður mjög spennandi einvígi núna á milli liða sem geta bæði unnið,“ sagði Björn. Deildarmeistaratitillinn sem Esja vann var fyrsti titillinn í stuttri sögu félagsins, en hann seður ekki hungur Björns og félaga:
„Íslandsmeistaraeinvígið skiptir mestu máli. Menn gleyma því alveg hver vann deildarmeistaratitilinn ef einhver annar varð Íslandsmeistari. Þetta er titillinn sem við viljum fyrst og fremst.“
SA komst með naumindum inn í úrslitakeppnina eftir að hafa endað tveimur stigum fyrir ofan Björninn. Esja hafði algjöra yfirburði í deildinni og tapaði aðeins einum leik í venjulegum leiktíma, af 24 leikjum sínum í vetur. Það tap kom reyndar gegn SA, 7:2 í nóvember. Hinar sjö rimmur liðanna vann Esja, oft þó með litlum mun.
Sjá allt viðtalið við Björn Róbert Sigurðarson í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag