Esja rótburstaði SR

Robbie Sigurðsson skoraði þrennu gegn sínum gömlu samherjum.
Robbie Sigurðsson skoraði þrennu gegn sínum gömlu samherjum. mbl.is/Srdjan Stevanovic

Esja rótburstaði SR, 11:0, í Hertz-deild karla í íshokkí í kvöld en leikið var í Skautahöll Reykjavíkur.

Esjan komst 3:0 yfir eftir 1. leikhluta en tvöfaldaði markaskorun sína í 2. leikhluta sem liðið vann 6:0.  Liðið vann svo þriðja leikhlutann 2:0 og 11:0 rassskelling staðreynd

Esja jafnar Björninn að stigum í deildinni og hafa bæði lið 9 stig en Esja á leik til góða á Björinn sem hefur nú leikið 5 leiki líkt og SA Víkingar sem hafa 12 stig í toppsætinu.

Mörk Esju:

Robbie Sigurðsson 3
Jan Semorad 3
Daniel Kolar 2
Markús Maak 2
Egill Þormóðsson 1

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert