Snæfell vann í æsispennandi leik

Snæfell hafði betur gegn KR í spennuleik í Hólminum í …
Snæfell hafði betur gegn KR í spennuleik í Hólminum í kvöld. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Snæfellingar lögðu KR-inga, 85:83, í æsispennandi leik í Stykkishólmi í kvöld og jöfnuðu þar með metin, 1:1, í einvígi liðanna í undanúrslitum Iceland Espress-deildarinnar í körfuknattleik. Daninn Martin Thuesen tryggði Snæfellingum sigurinn með þriggja stiga körfu fjórum sekúndum fyrir leikslok.

Staðan var jöfn, 41:41, í hálfleik en KR-ingar tóku völdin í þriðja leikhluta og virtust vera að innbyrða sigur en með mikilli seiglu tókst heimamönnum að knýja fram sigur.

Justin Shouse var stigahæstur í liði Snæfells með 21 stig og þeir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson skoruðu 16 stig hver. Hjá KR-ingum var Jeremiah Sola stigahæstur með 15 stig og Skarphéðinn Ingason kom næstur með 14.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert