Keflavík vann Suðurnesjaslaginn

Sigurður Ingimundarson og læriveinar í Keflavíkurliðinu fögnuðu sigri í Njarðvík …
Sigurður Ingimundarson og læriveinar í Keflavíkurliðinu fögnuðu sigri í Njarðvík í kvöld. Árni Sæberg

Keflavík hafði betur í Suðurnesjaslagnum í Iceland Express-deildinni í körfuknattleik í kvöld en Keflvíkingar fönuðu sigri í Ljónagryfjunni í Njarðvík, 78:63.

Snæfellingar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni þegar þeir báru sigurorð af nýliðum Stjörnunar í Stykkishólmi, 101:86. Hlynur Bæringsson var stigahæstur heimamanna með 20 stig.

Íslandsmeistarar KR-inga gerðu góða gerð á Akureyri þar sem þeir lögðu Þórsara, 100:91.

Í Grafarvogi hafði Tindastóll betur á móti Fjölni, 94:91.

Tölfræðin úr leik Snæfells og Stjörnunnar. Tölfræðin úr leik Þórs og KR. Tölfræðin úr leik UMFN og Keflavíkur.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert