Snæfell mætir KR í úrslitum

Sigurður Þorvaldsson lék fyrir Snæfell í kvöld.

Sigurður Þorvaldsson lék fyrir Snæfell í kvöld. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Snæfell mætir Íslandsmeisturum KR í úrslitum Powerade bikarkeppninnar í körfuknattleik á sunnudag en Snæfellingar höfðu betur gegn Njarðvíkingum, 85:79, í síðari undanúrslitaleiknum í Laugardalshöllinni í kvöld. Snæfell hefur einu sinni sigrað þessari keppni en KR hefur aldrei landað þessum titli.

KR og Snæfell áttust við í undanúrslitum Íslandsmótsins í fyrra þar sem KR hafði betur í oddaleik og tryggði sér síðan meistaratitilinn eftir einvígi gegn Njarðvík.

Justin Shouse skoraði 24 stig fyrir Snæfellinga og hirti 8 fráköst. Jón Ólafur Jónsson kom næstur með 17 stig og þeir Hlynur Bæringsson og Sigurður Þorvaldsson voru með 13 stig hver.

Brenton Birmingham var stigahæstur Njarðvíkinga með með 24 stig, knattspyrnukappinn Sverrir Þór Sverrisson skoraði 15 stig sem og Jóhann Ólafsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Körfubolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is